Innlent

Sex fluttir til skoðunar eftir árekstur á Sæbraut

Kjartan Kjartansson skrifar
Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll var sendur á slysstað.
Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll var sendur á slysstað. Vísir/Stefán
Minniháttar meiðsl urðu á fólki í árekstri tveggja bíla á gatnamótum Sæbrautar og Snorrabrautar í Reykjavík á níunda tímanum í kvöld. Sex manns sem voru um borð í bílunum voru þó fluttir til skoðunar á sjúkrahúsi.

Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru fimm manns í öðrum bílnum en einn í hinum.

Ekki var hægt að veita frekari upplýsingar um tildrög slyssins eða ástand fólksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×