Erlent

Opnun alríkisstjórnarinnar komin á borð Trump

Kjartan Kjartansson skrifar
Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings yfirgefa þinghúsið eftir atkvæðagreiðsluna í kvöld.
Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings yfirgefa þinghúsið eftir atkvæðagreiðsluna í kvöld. Vísir/AFP
Báðar deildir Bandaríkjaþings hafa samþykkt frumvarp um bráðabirgðafjárlög svo hægt verði að opna alríkisstjórnina aftur eftir þriggja daga lokun. Lögin hafa verið send Donald Trump forseta til undirskriftar.

Afgerandi meirihluti öldungadeildarinnar samþykkti frumvarpið fyrr í dag og nú í kvöld ljáðu 266 af 435 þingmönnum fulltrúadeildarinnar því samþykki sitt. Samkvæmt því verður rekstur alríkisstjórnarinnar fjármagnaður til 8. febrúar.

Rekstur alríkisstjórnarinnar stöðvaðist á miðnætti á föstudag eftir að þingmönnum tókst ekki að koma sér saman um bráðabirgðalausn. Rekstur alríkisstjórnarinnar hefur verið fjármagnaður með ítrekuðum bráðabirgðalausnum því þinginu tókst ekki að samþykkja fjárlög fyrir lok síðasta fjárlagaárs í september.

Níu þingmenn demókrata í öldungadeildinni þurftu að samþykkja bráðabirgðalausnina en því höfnuðu þeir til að knýja á um vernd fyrir um 700.000 innflytjendur sem fluttir voru ólöglega til Bandaríkjanna sem börn. Trump forseti afnam DACA-áætlunina sem verndaði þá fyrir brottvísun í september en þingið hefur enn ekki samþykkt frumvarp um örlög skjólstæðinga hennar.

Ætlun þingmanna er að nýta tímann til 8. febrúar til að ná samkomulagi um innflytjendamál. Repúblikanar eru klofnir í afstöðu sinni til þeirra. Sumir vilja veita skjólstæðingum DACA varanlegt dvalarleyfi eða ríkisborgararétt, harðlínumenn vilja hins vegar endurskoða allt innflytjendakerfið og draga verulega úr löglegum flutningi fólks til Bandaríkjanna.

Washington Post segir að frjálslyndir stuðningsmenn demókrata og baráttufólk fyrir réttindum innflytjenda sé ævareitt ákvörðun demókrata um að falllast á málamiðlun við repúblikana. Þeir hafi ekki fengið neina fullvissu um samkomulag um örlög skjólstæðinga DACA annað en loforð Mitch McConnell, leiðtoga repúblikana í öldungadeildinni, um að hann muni láta greiða atkvæði um frumvarp sem tekur á stöðu þeirra.


Tengdar fréttir

Enn allt í hnút vestanhafs

Hundruð þúsunda opinberra starfsmanna munu ekki geta mætt til vinnu í Bandaríkjunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×