Sport

Pissaði í vatnsflösku markmannsins - handtekinn og bannaður

Benedikt Bóas skrifar
Maðurinn hikaði lítið áður en hann lét vaða í brúsann.
Maðurinn hikaði lítið áður en hann lét vaða í brúsann.
Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið mann eftir að myndband birtist á netinu þar sem hann sést pissa í vatnsbrúsa og henda í áttina að markverði QPR, Alex Smithies. Opnar maðurinn brúsann og pissar í hann að því er virðist á myndbandinu. Skrúfar svo lokið í mestu makindum á og hendir brúsanum í áttina að markinu. Stuttu síðar varði markvörðurinn ágætt skot, þurrkaði hanskana í handklæðinu og fékk sér sopa úr brúsanum.

„Við getum staðfest að við höfum handtekið mann sem var á leik QPR og Middlesbrough. Hann mun koma fyrir dóm í næsta mánuði,“ segir í yfirlýsingu frá lögreglunni. Óheimilt er með öllu að henda hlutum inn á leikvang. Manninum hefur einnig verið bannaður aðgangur að heimaleikjum Boro.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×