Erlent

Pirraður ræningi kveikti í

Samúel Karl Ólason skrifar
Afgreiðslumanninum tókst að flýja og flúði ræninginn einnig. Hans er enn leitað.
Afgreiðslumanninum tókst að flýja og flúði ræninginn einnig. Hans er enn leitað.
Pirraður ræningi náðist á myndband þar sem hann reyndi að svæla út afgreiðslumann á bensínstöð eftir að afgreiðslumaðurinn neitaði að láta hann fá peninga. Ræninginn brá þá á það ráð að hella vökva á afgreiðsluborðið og kveikja í honum.

Lögreglan í Washington DC birti um helgina myndbandið af ráninu, sem átti sér stað þann 13. janúar. Afgreiðslumanninum tókst að flýja og flúði ræninginn einnig. Hans er enn leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×