Innlent

Kíkti á glugga í Árbæ

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tvö innbrot komu inn á borð lögreglunnar í nótt.
Tvö innbrot komu inn á borð lögreglunnar í nótt. VÍSIR/GETTY
Nóttin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var heilt yfir heldur tíðindalítil ef marka má dagbókarfærslur hennar.

Þrír ökumenn voru stöðvaðir eftir miðnætti; einn er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna, annar um að hafa ekið réttindalaus og sá þriðji er grunaður um að hafa verið bæði ölvaður og réttindalaus á rúntinum.

Þá bárust lögreglunni tvær tilkynningar um innbrot í austurhluta borgarinnar, annars vegar í Logafold í Grafarvogi og hins vegar á Bíldshöfða. Bæði málin eru að sögn lögreglunnar til rannsóknar.

Það var svo í Melbæ sem einstaklingur sást „kíkja á glugga“ og vakti það ónot íbúa á svæðinu. Lögreglan brá því á það ráð að aka um svæðið en samkvæmt dagbókarfærlunni bar aksturinn „ekki árangur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×