Fótbolti

Vilja senda leikmann Atletico í fangelsi fyrir að gifta sig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér er verið að tækla Hernandez í leik með Atletico.
Hér er verið að tækla Hernandez í leik með Atletico. vísir/getty
Hinn 21 árs gamli leikmaður Atletico Madrid, Lucas Hernandez, gæti verið á leið í fangelsi fyrir það eitt að giftast unnustu sinni í Las Vegas.

Hernandez og unnustunni lenti heiftarlega saman í febrúar á síðasta ári. Þá ákvað dómari í Madrid að setja þau bæði í nálgunarbann í sex mánuði. Þau máttu ekki hittast í hálft ár.

Þrátt fyrir slagsmálin og dóminn þá tók parið saman aftur og náði að grafa stríðsöxina. Það var svo ákveðið að ganga alla leið er þau giftu sig í Las Vegas síðasta sumar.

Spænsk yfirvöld höfðu nákvæmlega engan húmor fyrir því enda máttu þau ekki vera nær hvort öðru en 500 metra er þau giftu sig.

Er þau snéru aftur til Madrid voru þau handtekin á flugvellinum og saksóknari í Madrid vill nú að þau verði bæði dæmd í eins árs fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×