Lífið

Robin Bengtsson kemur fram á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Robin Bengtsson (t.v.) ásamt dansara á sviðinu í Kænugarði í Eurovision í fyrra.
Robin Bengtsson (t.v.) ásamt dansara á sviðinu í Kænugarði í Eurovision í fyrra. vísir/getty
Sænski söngvarinn og Íslandsvinurinn Robert Bengtsson mun koma fram á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar í ár, forkeppni RÚV fyrir Eurovision. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Bengtsson söng framlag Svía í Eurovision í fyrra, I Can‘t Go On, sem naut þó nokkurra vinsælda hér á landi en lagið lenti í 5. sæti í keppninni.

Sjá einnig:Myndarlegasti Eurovision-keppandinn tók kósýhelgi á Íslandi með ástinni sinni

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að Eurovision-stjarna treður upp á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar því í fyrra komu þeir Måns Zelmerlöw og Alexander Rybak fram og árið 2016 þær Loreen og Sandra Kim.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×