Fótbolti

Real úr leik í bikarnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Real Madrid er úr leik í spænsku bikarkeppninni eftir 1-2 tap á heimavelli gegn Leganes í kvöld.

Leikurinn var sá seinni í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum. Real Madrid vann fyrri leikinn 1-0 og því fór einvígið samtals 2-2. Leganes fer hins vegar áfram á mörkum skoruðum á útivelli.

Javier Eraso kom gestunum frá Leganes yfir á 31. mínútu. Karim Benzema jafnaði fyrir Real Madrid strax í upphafi seinni hálfleiks en Eraso var aftur á ferðinni aðeins 8 mínútum seinna þegar hann lagði boltann á Gabriel sem kom gestunum aftur yfir.

Madrid náði ekki að koma aftur til baka og er því úr leik í bikarkeppninni. Heimamenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum, en það er ekki spurt að því, heldur eru það mörkin sem telja og þau komu ekki hjá Real í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×