Fótbolti

Þjálfari Kaiserslautern fluttur á sjúkrahús í hálfleik

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Strasser tók við Kaiserslautern í haust
Strasser tók við Kaiserslautern í haust Vísir/Getty
Hætta þurfti leik Darmstad og Kaiserslautern í B-deildinni í Þýskalandi eftir að þjálfari Kaiserslautern var fluttur á sjúkrahús í hálfleik en samkvæmt þýskum fjölmiðlum fékk hann hjartaáfall.

Darmstad sagði að leikurinn hafi verið stöðvaður vegna neyðartilviks og Kaiserslautern sagði svo frá því að Strasser hefði verið fluttur á sjúkrahús.

„Á svona tímum minnumst við þess að það eru mikilvægari hlutir í lífinu heldur en fótbolti,“ sagði í yfirlýsingu frá Rudiger Fritsch, forseta Darmstad.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×