Bíó og sjónvarp

Orðrómur um ástaratriði leiðir til hatrammra mótmæla

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Drottningin Padmavati byggir á aðalpersónu ljóðabálks frá 16. öld.
Drottningin Padmavati byggir á aðalpersónu ljóðabálks frá 16. öld. VIACOM18
Öryggisgæsla hefur verið aukin í fjölda indverskra héraða í aðdraganda frumsýningar kvikmyndar, sem leitt hefur til hatrammra mótmæla. Skólum hefur verið lokað í úthverfum höfuðborgarinnar eftir að mótmælendur réðust á skólarútur og fjölmörg kvikmyndahús hafa gefið það út að kvikmyndin umrædda, Padmavaat, verði ekki sýnd á tjöldum þeirra.

Að sögn breska ríkisútvarpsins eru mótmælendur æfir vegna sambands aðalpersónanna, sem þeir telja rómantískt. Það þykir þeim ekki við hæfi í ljósi þess að persónurnar eru annars vegar múslimskur konungur og drottning sem er hindúatrúar. Þrátt fyrir að konungurinn, Alauddin Khilji, hafi verið til í alvörunni er öll framvinda myndarinnar uppspuni frá rótum - byggð á ljóðabálki frá 16. öld.

Orðrómur um atriði í kvikmyndinni þar sem konungurinn sést dreyma um ástaratlot með drottningunni hefur sérstaklega farið fyrir brjóstið á mótmælendunum. Leikstjóri myndarinnar, Sanjay Leela Bhansali, hefur hins vegar ítrekað lýst því yfir að ekkert slíkt draumaatriði sé að finna í kvikmyndinni.

Engu að síður var útgáfu myndarinnar seinkað um tvo mánuði vegna mótmæla en öfgahópar hindúa hafa meðal annars borið eld að bílum og ráðist á kvikmyndahús víðsvegar um Indland.

Hæstiréttur Indlands hafnaði því síðastliðinn þriðjudag að banna kvikmyndina í landinu. Fyrrnefndir hindúar hafa farið fram á lögbann, sem og bæjaryfirvöld sem óttast um öryggi þegna sinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×