Viðskipti erlent

Vika í skot öflugustu eldflaugar heims

Samúel Karl Ólason skrifar
27 hreyflar eldflaugarinnar voru gangsettir á skotpalli fyrirtækisins í Flórída en eldflauginni sjálfri var haldið niðri.
27 hreyflar eldflaugarinnar voru gangsettir á skotpalli fyrirtækisins í Flórída en eldflauginni sjálfri var haldið niðri. SpaceX
Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX prófuðu í gær hreyfla Falcon Heavy eldflaugarinnar, sem ætlað er að koma mönnum út í geim og mögulega til tungslsins og til Mars. 27 hreyflar eldflaugarinnar voru gangsettir á skotpalli fyrirtækisins í Flórída en eldflauginni sjálfri var haldið niðri.

Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri SpaceX, sagði á Twitter í gær að tilraunin hefði gengið vel til stæði að skjóta eldflauginni á loft eftir um það bil viku. Tafir hafa orðið á eldflaugaskotinu og meðal annars vegna stöðvunar á rekstri stjórnvalda Bandaríkjanna.

Falcon Heavy er um það bil tvisvar sinnum kröftugri en næst kröftugasta eldflaugin sem notast er við í dag.

Eldflaugin mun geta flutt 54 tonn á sporbraut um jörðu og meirihluti eldflaugarinnar er hannaður til þess að lenda aftur á jörðinni og vera notaður aftur. Þannig getur fyrirtækið flutt þyngri farma á sporbraut fyrir mun minni kostnað. Kraftur eldflaugarinnar jafnast á við kraft 18 747 farþegaþota.

Einungis ein eldflaug hefur verið kröftugri en það var Saturn V eldflaug NASA sem notuð var til að flytja menn til tunglsins. Slík eldflaug var síðast notuð árið 1973.

Sjá einnig: Öflugasta eldflaug heimsins prófuð

SpaceX birti einnig myndband af tilrauninni.

Falcon Heavy er 70 metra há og í rauninni er fyrsta stig hennar gert úr þremur Falcon 9 eldflaugum, sem SpaceX hefur notast við að undanförnu með góðum árangri. Skömmu eftir flugtak er hægt á miðjueldflauginni en hún heldur fluginu áfram þegar hinar tvær hafa losnað frá og eru aftur á leið til jarðarinnar.

Sjá einnig: Öll mistök SpaceX í einu myndbandi

Eftir að annað stig eldflaugarinnar tekur við snýr miðjuflaugin einnig aftur til jarðarinnar. Annað stig er knúið áfram af Merlin eldflaug SpaceX, sem er í raun Falcon 9 eldflaug fyrir utan það að hún er hönnuð til að virka vel í tómarúmi geimsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×