Íslenski boltinn

Stjarnan vill ekki skrifa undir fyrir Guðjón fyrr en að FIFA gefur grænt

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðjón Baldvinsson verður að vera klár fyrir Stjörnuna í apríl.
Guðjón Baldvinsson verður að vera klár fyrir Stjörnuna í apríl. vísir/anton brink
Guðjón Baldvinsson, framherji Stjörnunnar í Pepsi-deild karla í fótbolta, er staddur á Indlandi þar sem hann bíður eftir því að fá keppnisleyfi með Kerala Blasters í indversku úrvalsdeildinni.

Þrátt fyrir að vera ekki kominn með leikheimild flaug Guðjón til Indlands í gær og er kominn á liðshótelið þar sem hann bíður eftir því að fá grænt ljós.

„Ég er í rauninni bara að bíða eftir einhverri staðfestingu en ég veit ekki í alveg hver á að gefa hana. Ég held að Stjarnan sé að bíða eftir svari frá FIFA. Ég er á hóteli með liðinu en þarf að kveðja ef þetta klikkar allt saman. Þetta er alveg sturlað,“ sagði Guðjón við Vísi í morgun.

Málið er í biðstöðu því Stjarnan þarf að fá staðfestingu frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA, um að Guðjón fái leikheimild með Stjörnunni þegar að hann kemur til baka í mars.

„KSÍ hefur ekki getað svarað því,“ segir Victor Ingi Olsen, rekstarstjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar, við Vísi. „KSÍ sendi fyrirspurn á FIFA til að fá það staðfest að hægt sé að lána leikmenn svona stutt en fá þá með leikheimild þegar að þeir koma til baka.“

Reglur FIFA eru þannig að einungis er hægt að lána leikmenn á milli tveggja félagaskiptaglugga, það er svokallað lágmarks lánstímabil. Það sem Stjarnan þarf að vita er til dæmis hvort um sé að ræða glugga í sama landi því ef farið er eftir indverska glugganum lokast Guðjón inni.

„Glugginn á Indlandi opnar ekki aftur fyrr en í júní þegar að hann lokar núna og þá gæti Guðjón ekki spilað með okkur fyrr en í júlí,“ segir Victor Ingi, en augljóslega vilja Garðbæingar geta spilað framherjanum þegar Pepsi-deildin hefst í lok apríl.

„Það gæti verið hægt að túlka þetta þannig að gluggi eitt sé á Indlandi og gluggi tvö á Íslandi og svo hafa verið gefnar undanþágur þegar menn eru að skipta á milli deilda sem eru spilaðar annars vegar um vetur og svo um sumar.“

„En, það er leikur á laugardaginn hjá Kerala Blasters þannig það var ákveðið að Gaui færi út. Hann var á Saga Class með Emirates alla leið. Það fór ekkert illa um hann. Ég vona bara að það komi svar við þessu í dag þannig að við getum skrifað undir pappírana,“ segir Victor Ingi Olsen.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×