Innlent

Bæjarstjóri segir Veritas vinna fyrir Gróu á Leiti

Haraldur Guðmundsson skrifar
Bæjaryfirvöld í Kópavogi kynntu í vor deiliskipulagstillöguna svo stækka megi bæjarskrifstofurnar við Digranesveg 1 í átt að Fannborg.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi kynntu í vor deiliskipulagstillöguna svo stækka megi bæjarskrifstofurnar við Digranesveg 1 í átt að Fannborg. Vísir/Vilhelm
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir ummæli sem honum eru eignuð í bréfi frá lögmanni húsfélags í bænum, og eigi að hans mati að sýna sérstaka óvild í garð eldri borgara, uppspuna frá rótum og dylgjur ónafngreindra manna. Furðu sæti að lögmannsstofan Veritas hafi tekið að sér að „bera út slíkar aðdróttanir“ þar sem nafn hennar þýði sannleikur á latínu.

Þetta sagði Ármann á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær þegar lagt var fram erindi Veritas varðandi rétt húsfélagsins að Fannborg 3-9 til 36 bílastæða við fasteignirnar.

Lögmaðurinn Skarphéðinn Pétursson sendi bænum bréfið þann 17. janúar og í því segir að tillaga bæjaryfirvalda að deiliskipulagi, fyrir stækkun fasteigna að Digranesvegi 1, sem hafi þann tilgang að tryggja aukið húsnæði undir skrifstofur bæjarins, muni skerða rétt íbúanna til bílastæða. Þeir hafi mótmælt tillögunni, enda húsfélagið tryggt sér bílastæðin árið 1979, og muni krefjast skaðabóta ef réttindin verða skert.



Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs.
„Fór svo að meðferð hennar var frestað af hálfu bæjarins, enda ljóst að kosningar eru á næsta leiti og vart von á að boðaður yfirgangur bæjaryfirvalda myndi beinlínis auka kosningavinsældir kjörinna fulltrúa. Hins vegar var umbjóðanda mínum tilkynnt af bæjarstjóra að henni yrði framfylgt af hörku eftir kosningar og íbúar Fannborgar 3-9, sem flestir eru eldri borgarar, væru ekkert of góðir til þess að leggja við Kópavogskirkju og ganga heim til sín!“ segir í bréfi lögmannsins sem Ármann svaraði með bókun á bæjarráðsfundinum.

„Það er gömul saga að þegar líður að kosningum fer Gróa gamla á Leiti á kreik. Það er hins vegar ný saga að hún skuli vera komin með lögmann. […] Það er kannski kaldhæðni örlaganna að Gróa á Leiti hafi endað þar,“ sagði Ármann.

Í umsögn bæjarritara sem lögð var fram á fundinum kemur fram að deiliskipulagstillagan var auglýst í apríl í fyrra. Hún hafi aftur á móti ekki verið send Skipulagsstofnun innan sex mánaða frá því að frestur til athugasemda rann út. Tillagan hafi ekki verið afgreidd af bæjarstjórn innan þess tíma og því engin tillaga að breyttu deiliskipulagi til meðferðar hjá henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×