Viðskipti innlent

Costco hæst og lægst í Ís­lensku ánægjuvoginni

Birgir Olgeirsson skrifar
Fyrirtækið var með hæstu einkunn þegar kom að eldsneytismarkaði en þá lægstu þegar kom að smásölumarkaði.
Fyrirtækið var með hæstu einkunn þegar kom að eldsneytismarkaði en þá lægstu þegar kom að smásölumarkaði. Vísir/eyþór

Bandaríska verslunarkeðjan Costco var með hæstu einkunn í Íslensku ánægjuvoginni þegar kom að eldsneytismarkaði en þá lægstu þegar kom að smásölumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu Stjórnvísi sem tilkynnti niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2017 í morgun en þetta er nítjánda árið sem ánægja í garð íslenskra fyrirtækja er mæld með þessu hætti.



Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 25 fyrirtæki í 8 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á um 200-1.100 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Líkt og undanfarin fjögur ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.



Í ár var afhent viðurkenning á fimm mörkuðum. Á eldsneytismarkaði fékk bensínstöð Costco 86,5 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 76,4 á farsímamarkaði, Vínbúðir ÁTVR fengu 74,1 stig á smásölumarkaði, BYKO fékk 68,9 á byggingavörumarkaði og Íslandsbanki fékk 66,5 stig á bankamarkaði. Costco eldsneyti var einnig með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Hins vegar ber að taka fram að Costco er ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði en þar var Costco með lægstu einkunnina eða 59,1 stig.



Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja færður blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur á milli hæstu og næsthæstu einkunnar voru tryggingafélög, raforkusölur og matvörumarkaður.



Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og Samtaka iðnaðarins og sá Zenter rannsóknir um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni.

Verðlaunahafar: Liv Bergórsdóttir forstjóri NOVA, Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá, Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR, Karen Rúnarsdóttir markaðsstjóri Krónunnar, Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, Ásgeir Margeirsson forstjóri HS orku, Birgir Örn Friðjónsson framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni BYKO og Einar Jón Másson aðstoðarframkvæmdastjóri Costco.Stjórnvísi





Fleiri fréttir

Sjá meira


×