Handbolti

Arnór liggur særður undir feldi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór í leik með landsliðinu.
Arnór í leik með landsliðinu. vísir/getty
Reynsluboltinn Arnór Atlason hefur ekki enn tekið ákvörðun um hvort hann leggi landsliðsskóna á hilluna. Hann er enn að sleikja sárin eftir vonbrigðin á EM í Króatíu.

Það var ekki bara að liðinu gengi illa heldur fékk Arnór lítið sem ekkert að spila. Hann lék í tæpar fimm mínútur eða næstminnsta allra leikmanna liðsins. Aðeins nýliðinn Ýmir Örn Gíslason lék minna. Arnór lék 46 sekúndum meira en Ýmir.

„Þetta var leiðinlegt í alla staði. Þetta var alveg ömurlegt. Ég ætla ekki að gefa neitt út núna. Aðeins að melta þetta allt saman fyrst,“ segir Arnór sem fór beint heim til Danmerkur eftir mótið.

„Þetta mót var ekki eins og mig hafði dreymt um. Ég átti ekki skot í mótinu og náði ekki einu sinni að hugsa um að skjóta á markið á þeim tíma sem ég var inn á vellinum.“

Þessi reynslumikli kappi er nú ekki þekktur fyrir að ana að hlutunum og hann ætlar að skoða sín framtíðarmál í rólegheitunum.

„Ég ætla bara að melta þetta áfram og sjá hvað gerist. Ég vil ekki taka neina ákvörðun þegar allt er ferskt. Það borgar sig ekki að taka neina fljótfærna ákvörðun. Við þurfum að leyfa þessu blessaða móti að klárast að minnsta kosti en maður losnar ekki við það. Þetta er í sjónvarpinu allan daginn þar sem Danirnir tala endalaust um hvað þeir séu frábærir,“ segir Arnór léttur.

Hann á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við danska meistaraliðið Álaborg og mun nú einbeita sér að því að verja titilinn með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×