Ronaldo skoraði tvö í sigri Real

Dagur Lárusson skrifar
Ronaldo skoraði tvö.
Ronaldo skoraði tvö. vísir/getty
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í sigri Real Madrid gegn Valencia í dag er liðið komst í 38 stig í deildinni.

Real Madrid var 19 stigum á eftir erkifjendum sínum í Barcelona fyrir leikinn og því stuðningsmenn liðsins allt annað en sáttir.

Það lék hinsvegar allt í lyndi er liðið fór í heimsókn til Valencia í dag. Cristiano Ronaldo skoraði fyrsta mark leiksins af vítapunktinum á 16. mínútu áður en hann skoraði annað mark af vítapunktinum á 38. mínútu og því staðan orðin 0-2 og þannig var staðan í leikhlé.

Liðsmenn Valencia mættu öflugir til leiks í seinni hálfleikinn og náðu að minnka muninn á 58. mínútu með marki frá Santi Mina.

Allt stefndi í spennuþrungnar lokamínútur þar til Marcelo skoraði á 84. mínútu og tryggði sigur Real Madrid. Toni Kroos skoraði síðan síðasta mark Real Madrid og síðasta mark leiksins á 89. mínútu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira