Glamour

Sérsaumaðar draumaflíkur hátískunnar

Ritstjórn skrifar
Pierre Balmain í stúdíó sínu í kringum árið 1940.
Pierre Balmain í stúdíó sínu í kringum árið 1940. Glamour/Getty
Þessa dagana virðist vera tískuvika í hverri einustu viku einhversstaðar í heiminum þar sem einhver útgáfa af haust- og vetrarlínum næsta árs er sýnd. Í vikunni fór fram Haute Couture tískuvikan í París þar sem stærstu tískuhúsin sýndu fallega kjóla og flíkur sem einna helst passa á rauða dreglinum.

En hvað þýðir haute couture?

Haute couture, eða hátíska, er í raun sérsaumaðar og klæðskerasniðnar flíkur sem eru handgerðar frá upphafi til enda fyrir kúnnana. Öll smáatriði eru unnin í höndunum af faglærðu fólki og mikið lagt upp úr því. Efnin eru í bestu mögulegu gæðum og verðmiðinn á lokaútkomunni skiptir engu máli. Það er ekki á færi allra tískuhúsa að geta skreytt sig með haute couture stimplinum en til þess að geta tekið þátt í hátískunni þurfa tískuhúsin að uppfylla eftirfarandi skilyrði hér, sem voru ákveðin í París árið 1945:

- Að sérsauma flíkur gegn pöntunum fyrir viðskiptavini.

- Starfrækja vinnustofu (atelier) í París með að minnsta kosti 15 starfsmönnum í fullu starfi.

- Vera með að minnsta kosti 20 starfsmenn sem sérhæfa sig í tæknilegri vinnu á vinnustofunni (atelier).

- Sýna fatalínu með að minnsta kosti 50 flíkum tvisvar á ári (í janúar og júní) og að það sé blanda af kvöldklæðnaði og hvers- dagsfatnaði.

Hér eru nokkrar skemmtilegar myndir í frá vinnustofum í París gegnum tíðina. 

 

Franska leikkonan Catherine Deneuve í mátun hjá Yves Saint Laurent.
Jean Paul Gaultier í sínu haute couture stúdíói.
Christian Lacroix að undirbúa haute couture sýningu.





×