Bíó og sjónvarp

Ísold datt ekki í hug að hún hlyti verðlaunin

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ísold Uggadóttir, kvikmyndaleikstjóri, var valin besti leikstjórinn á lokahátíð Sundance-kvikmyndahátíðarinnar í Utah, Bandaríkjunum.
Ísold Uggadóttir, kvikmyndaleikstjóri, var valin besti leikstjórinn á lokahátíð Sundance-kvikmyndahátíðarinnar í Utah, Bandaríkjunum. Vísir/Ísold
Ísold Uggadóttir, kvikmyndaleikstjóri, segir að það hafi verið svo mikil upphefð að hafa komist á Sundance-kvikmyndahátíðina að það hafi ekki hvarflað að henni að hún yrði valin besti leikstjórinn í flokki alþjóðlegra kvikmynda á hátíðinni fyrir kvikmyndina sína Andið eðlilega.

Ísold var himinlifandi þegar blaðamaður Vísis náði tali af henni. Leikhópur kvikmyndarinnar Andið eðlilega fylgdi Ísold til Utah á hátíðina og var viðstaddur þegar Ísold hlaut hin mikils virtu verðlaun. Breytir það ekki öllu að vinna til verðlauna á kvikmyndahátíð af þessari stærðargráðu?

„Jú, ég náttúrulega hef aldrei unnið til verðlauna fyrir mynd í fullri lengd, það er að segja þetta er fyrsta myndin mín í fullri lengd og fyrsta hátíðin þannig að það kemur allt í ljós hvaða þýðingu þetta hefur. Fyrir mig sjálfa þá var bara ótrúlegt að komast á þessa hátíð. Það var eitthvað svo fjarlægt að geta unnið til verðlauna og hvað þá sem besti leikstjórinn, það var eitthvað svo fjarlægur draumur og það er magnað að það hafi gerst!“



Aðstandendur kvikmyndarinnar voru himinlifandi með verðlaunin.Vísir/afp
Andið eðlilega hverfist um tvær konur sem báðar eru á erfiðum stað í lífinu. Önnur er flóttakona frá Gíneu-Bissá og hin er móðir í kröggum sem vinnur á Leifsstöð. Ísold leikstýrði og skrifaði handritið að myndinni. Kristín Þóra Halldórsdóttir og Babetida Sadjo fara með aðalhlutverkin.

„Ég byrjaði að skrifa handritið 2012. Mér fannst ég vera að lesa margar átakanlegar sögur og fannst einhvern veginn borðleggjandi að ég sem kvikmyndaleikstjóri gerði mynd sem tengdist málefninu og þá fyrir vikið þá mætti ég á ýmsa fyrirlestra og las allt sem ég gat lesið og fór út í rannsóknarvinnu sjálf,“ segir Ísold þegar hún spurð hvort málefni flóttafólks væri henni ofarlega í huga.

Andið eðlilega kemur í kvikmyndahús hér á landi um mánaðamótin febrúar og mars. Það er margt spennandi fram undan hjá leikstjóranum en Ísold heldur til Gautaborgar eftir fáeina daga og keppir um Drekaverðlaunin. Á föstudag verður Evrópufrumsýning myndarinnar á kvikmyndahátíðinni.  

„Maður er svo lengi að undirbúa svona bíómynd og svo loksins þegar hún er tilbúin er maður á fullu að undirbúa frumsýninguna fyrir Sundance og svo núna þegar hún er afstaðin var ég eiginlega ekki búin að hugsa lengra. Það er dálítill spuni í framhaldinu,“ segir Ísold.

Þegar Ísold er spurð hvort hún hafi kannski ekki búist við því að vinna skellir hún upp úr og svarar: „Nei, mér datt það bara ekki í hug.“

Hér að neðan er hægt að sjá brot úr myndinni Andið eðlilega.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×