Körfubolti

Ægir stoðsendingahæstur í sigri Castello

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ægir Þór Steinarsson
Ægir Þór Steinarsson vísir/ernir
Ægir Þór Steinarsson hjálpaði liði sínu Tau Castello til sigurs á Barcelona í spænsku B-deildinni í körfubolta í dag.

Ægir skoraði 10 stig og tók 2 fráköst ásamt því að gefa 5 stoðsendingar á hálftíma þegar Castello vann tíu stiga sigur, 77-87, á Barcelona.

Gestirnir í Tau Castello náðu góðri forystu um miðjan fyrsta leikhluta en heimamenn komu til baka og minnkuðu muninn niður í eitt stig, 21-22, fyrir lok fyrsta fjórðungsins.

Leikurinn var nokkuð jafn í öðrum leikhluta, en Tau Castello var þó alltaf nokkrum stigum framar en andstæðingurinn. Staðan í hálfleik var 34-42 fyrir Castello.

Það sem eftir lifði náðu gestirnir að halda forystu sinni í kringum tíu stigin og enduðu svo á 77-87 sigri.

Castello er í 6. sæti deildarinnar með 33 stig en Barcelona er í því 14.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×