Körfubolti

Hilmar aftur í Hauka

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hilmar Pétursson í landsleik
Hilmar Pétursson í landsleik Mynd/FIBA
Bakvörðurinn Hilmar Pétursson er á leiðinni aftur í Hafnarfjörðinn eftir stutta dvöl í Keflavík. Karfan.is greinir frá þessu í kvöld.

Hilmar spilaði vel framan af tímabili en tækifærunum hefur minnkað eftir endurkomu Harðar Axel Vilhjálmssonar í liðið.

Í 15 leikjum á tímabilinu er hann með 5,6 stig að meðaltali í leik, 1,7 frákast og 2,1 stoðsendingu.

Hilmar vonast eftir meiri spilatíma með uppeldisfélagi sínu Haukum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×