Glæsimark Messi tryggði Barcelona sigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lionel Messi kann þá list að skora falleg mörk
Lionel Messi kann þá list að skora falleg mörk vísir/getty
Philippe Coutinho byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í kvöld þegar Alaves mætti í heimsókn á Camp Nou.

John Guidetti kom Alaves yfir á 23. mínútu með marki úr vel útfærðri skyndisókn gestanna. Barcelona náði ekki að svara í fyrri hálfleik og gestirnir því með eins marks forystu í leikhléi.

Coutinho var tekinn af velli á 66. mínútu og sex mínútum síðar jafnaði Luis Suarez leikinn fyrir Barcelona eftir fyrirgjöf Andres Iniesta.

Lionel Messi kom Barcelona svo yfir á 84. mínútu með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu.

Barcelona situr enn sem fastast á toppi La Liga deildarinnar með ellefu stiga forskot á Atletico Madrid í öðru sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira