Golf

Federer er hluti af nýju rútínunni hjá Ólafíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/S2
Sunnudagurinn 29. janúar 2018 var frábær dagur fyrir besta kylfing landsins og það lítur út fyrir að Svisslendingurinn Roger Ferderer hafi átt sinn þátt í því.

Roger Federer vann í gær sinn tuttugasta risatitil á ferlinum á opna ástralska risamótinu og bætti þar sem eigið met. Það féllu bæði tár hjá honum og þeim sem horfðu á hann í mótslok.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er mikill aðdáandi Roger Federer og hefur alltaf verið. Hún fylgdist með hinni 36 ára gömlu lifandi goðsögn bæta enn einni rósinni í hnappagatið og það hafi frábær áhrif á hana.

Ólafía Þórunn þurfti að vakna eldsnemma því hún varð að spila 24 holur á þessum lokadegi þar sem að keppni var frestað daginn áður.

Hún þurfti líka að spila mjög vel til að fá að spila fleiri holur en þessar sex til að klára annan hringinn. Aðeins góð spilamennska myndi skila henni í gegnum niðurskurðinn.

Ólafía Þórunn gerði það og gott betur. Hún fékk fjóra fugla á síðustu sex holunum á öðrum hring og bætti síðan við fimm fuglum á þriðja hringnum. Það skilaði henni á einu höggi undir pari samanlagt og 26. sætinu á mótinu.

Ólafía sagði frá nýju rútínunni sinni á Twitter og það er ekki að heyra á öðru en að hún sé komin til að vera.







Roger Federer er frábær fyrirmynd alveg eins og Ólafía sjálf. Ef þessi byrjun hennar á LPGA-tímabilinu er fyrirboði þess sem koma skal í ár verður mjög spennandi að fylgjast með Íþróttamanni ársins spila með bestu kylfingum í heimi. Nú er bara að vona að Roger Federer sé líka að spila þegar Ólafía keppir næst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×