Glamour

Í kjól þöktum 275 þúsund demöntum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það voru smá vonbrigði að sjá ekki sjálfa drottninguna Rihönnu á rauða dreglinum fyrir Grammy verðlaunahátíðina sem fór fram í New York í nótt. En söngkonan lét sig sko ekki vanta á hátíðina og hafði meira að segja þrisvar sinnum fataskipti yfir kvöldið. 

Hún koma fram ásamt Bryson Tiller og DJ Khaled þar sem þau sungu lagið vinsæla Wild Thoughts en þá klæddist hún fallegum fjólubleikum kjól úr smiðju Adam Selman. Kjólinn var sérsaumaður á Rihönnu (en ekki hvað?) og þaktur 275 þúsund demöntum, hvorki meira né minna. Þá var hún í appelsínugulum sokkabuxum við. Mjög hressandi. 

Þegar hún tók við verðlaunum fyrir besta rappið ásamt Kendrick Lamar í laginu Loyalty klæddist hún lakkkjól úr nýjustu línu Alexandre Vauthier. 

Rihanna skipti svo yfir í örlítið þægilegri fatnað þegar leið á kvöldið og hún gat tekið sér sæti út í sal. 


Tengdar fréttir

Flottustu kjólarnir á Grammy

Gestir Grammy hátíðarinnar voru að sjálfsögðu klædd í sitt fínasta púss í New York í nótt.






×