Innlent

Engin lognmolla í kortunum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það blés um Kórahverfi Kópavogs í gær. Íbúar hverfisins, sem og annarra hverfa, ættu að undirbúa sig fyrir sambærilegan vind á morgun.
Það blés um Kórahverfi Kópavogs í gær. Íbúar hverfisins, sem og annarra hverfa, ættu að undirbúa sig fyrir sambærilegan vind á morgun. Vísir/Vilhelm
Að sögn Veðurstofunnar er útlit fyrir „ágætisveður“ á öllu landinu í dag en þó verður suðaustankaldi austanlands framan af degi. Þá verður rigning suðaustantil fram eftir morgni, en annars smá skúrir eða slydduél á víð og dreif. Kólnar í veðri og hitinn verður á bilinu 0 til 5 stig síðdegis, en frystir norðaustantil í kvöld.

Landsmenn ættu að njóta veðursins meðan þeir geta því í nótt og á morgun nálgast kröpp og dýpkandi lægð sunnan úr hafi og fer þá að hvessa af suðaustri. Það verður kominn suðaustanstormur með slagveðurs-rigningu sunnan- og vestanlands annað kvöld. Vindhraðinn verður frá 18 til 25 m/s og hlýnar í veðri.

Sjá einnig: Veðrið í gær „sýnishorn“ fyrir komandi lægðir

„Enga lognmollu er að sjá í veðurkortum helgarinnar, enda fleiri öflug veðurkerfi á leiðinni með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. Því um að gera að flygjast vel með veðurspám, ekki síst ef leggja á land undir fót og muna að tryggja lausamuni í garðinum og á svölum, svo þeir takist ekki á loft vindhviðum,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Vaxandi suðaustanátt, 18-25 m/s undir kvöld, hvassast við fjöll. Talsverðri rigning S- og V-til, en lengst af þurrt NA-lands. Hlýnandi veður, hiti 2 til 7 stig um kvöldið.

Á föstudag:

Suðaustan 18-23 m/s og talsverð eða mikil rigning á A-verðu landinu, einkum á SA-landi, en hægari og skúrir eða slydduél V-til. Hiti víða 2 til 7 stig.

Á laugardag:

Vaxandi sunnan- og síðan suðaustnátt með skúra- eða éljahryðjum, stormur og talsverð rigning eða slydda um kvöldið, en hægara og úrkomulítið N- og A-lands. Hiti 0 til 5 stig.

Á sunnudag:

Líklega suðaustlæg átt með éljum, en áfram hvasst og rigning fram eftir degi austanlands.

Á mánudag og þriðjudag:

Sennilega suðaustlæg eða breytileg átt með skúrum eða éljum víða um land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×