Innlent

Ekkert verður af sögulegu prófkjöri í Eyjum

Kolbeinn Tumi Daðason og Samúel Karl Ólason skrifa
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Vísir/Eyþór
Ekkert verður af fyrsta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í 28 ár. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélagsins þar í bæ kaus í kvöld gegn því að halda prófkjör en tillaga um að stillt yrði upp á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor náði ekki 2/3 atkvæða í desember og var því felld.

Eftir að tillagan um prófkjör var felld var gerð tillaga um að fara leið röðunar, sem Sjálfstæðismenn á Akureyri ætla meðal annars að fara. Var sú tillaga samþykkt með um 75 prósentum atkvæða. Við röðun eru það aðeins aðal- og varamenn í fulltrúaráðinu sem fá að kjósa á milli frambjóðenda. Óbreyttir Sjálfstæðismenn í Eyjum hafa ekki kosningarétt.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum til tólf ára, er ánægður með niðurstöðu fundarins.

„Já, ég var í þeirri stöðu að vera búinn að segja vel fyrir jól að ég myndi gefa kost á mér til að leiða listann, sama hvaða leið er valinn,“ segir Elliði. Hann segir það ekki hafa skipt neinu máli fyrir sig hvaða leið yrði farin í þeim efnum. Prófkjör eða annað.

Í atkvæðagreiðslu um tillögu að prófkjöri í kvöld greiddi hann atkvæði gegn tillögunni.

„Já. Það var leynileg atkvæðagreiðsla en ég hefði ekkert haft á móti prófkjöri og hefði glaður farið í það,“ segir Elliði. Hann segist sjálfur hafa talað fyrir því, eftir að tillagan um prófkjör var felld, að farið yrði í leiðtogaprófkjör.

„En það hafði enginn áhuga á því. Ég var einn um þá skoðun af 54,“ segir Elliði léttur.

Samkvæmt heimildum Vísis var prófkjörstillagan felld með 28 atkvæðum gegn 26.


Tengdar fréttir

Elliði tilbúinn í fyrsta prófkjör í Eyjum í 28 ár

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélagsins í Vestmannaeyjum felldi skömmu fyrir áramót tillögu um að stillt yrði upp á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×