Bakþankar

Einþáttungur

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Hægri maður: Voðalegt er að sjá útganginn á þér. Ertu Pírati?

Pírati: Yarr!

Hægri maður: Ætlastu kannski til að ég bjóði þér í glas? Viljið þið ekki fá allt fyrir ekki neitt á kostnað skattborgarans? Hanga heima á borgaralaunum og spila tölvuspil þangað til þið verðið öryrkjar?

Pírati: Yarr!

Hægri maður: Yarr? Ertu fáviti? Án gríns? Hvað er eiginlega að þér? Borðaðir þú kannski norska Grandiosa-pitsu hitaða í ofni á jólunum?

Pírati: Uuuuuu?… nei. Ég er sko vegan. Bara með hnetusteik, sko. Þúst, það eru ekki allir eins, sko. Sumum þykir vænt um dýrin og hafa áhyggjur af umhverfinu og sona. Sko?…

Hægri maður: Ohhh! Grasæta! Þess vegna ertu svona fölur og ræfilslegur. Af hverju biðurðu ekki Vinnumálastofnun um að gefa þér kort í World Class? Bí a men, og farðu að rífa í lóðin!

Pírati: Ööööö?… nei, ég hugleiði sko. Þúst, maður verður sko að passa zenið og rækta andann.

Hægri maður: Já, einmitt. Með því að reykja hass og horfa á dánlódað þýfi í tölvunni?

Pírati: Ehhhh, það reykir enginn hass lengur maður. Bara gras.

Hægri maður: Vottever. Djöfull væri ég til í að buffa þig ef Verzló-gengið mitt væri hér en ekki á Vogi. Áfengi þú skilur. Ekkert ólöglegt!

Pírati: Þú veist samt að kókaín er ekki löglegt. Píratar ætla alveg að redda því, sko. Þúst, fíkniefnastrí…

Hægri maður: Díses! Þið eruð svoooo glatað pakk. Það vantar allt pönk í ykkur.

Pírati: Ha? En þú veist að pönkið varð til út af fólki eins og þér. Og Píratar líka, eiginlega sko. Við viljum sko breytingar. Finnst þér þetta allt bara allt í læ eins og það er?

Hægri maður: Æ, haltu kjafti og vefðu mér jónu.

Tjaldið.






×