Viðskipti innlent

Icelandair flýgur til San Francisco

Samúel Karl Ólason skrifar
San Francisco, sem var í leiðakerfi Icelandair í tvö sumur fyrir rúmum áratug, er ein þekktasta og vinsælasta ferðamannaborg í heimi og jafnframt ein af fjölmennustu borgum Bandaríkjanna með um 9 milljónir íbúa á San Francisco Bay Area svæðinu.

Flugfélagið Icelandair hefur ákveðið að hefja flug til San Francisco í vor og verður hún 23. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku í leiðakerfi flugfélagsins. Þetta er þriðja borgin í Bandaríkjunum í vikunni sem Icelandair hefur tilkynnt að flogið verði til. Alls flýgur Icelandair til sex nýrra áfangastaða, Cleveland, Dallas, Kansas City, Baltimore, San Francisco í Bandaríkjunum og Dublin á Írlandi á árinu 2018.

„San Francisco er þriðja nýja borgin sem við kynnum á jafnmörgum dögum í þessari viku í tengslum við þessa markaðssókn í Bandaríkjunum“, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair í tilkynningu.

„Þetta eru ólíkir áfangastaðir sem undirstrika hina miklu breidd sem er í leiðakerfinu og þjónustu okkar. San Francisco opnar nýja leið inn á hinn risastóra Kaliforníumarkað á vesturströndinni og flug á Baltimoreflugvöll styrkir stöðu okkar á Washington/Baltimore svæðinu á austurströndinni. Kansas City, stór borg í miðjum Bandaríkjunum, opnar svo áður lokaða markaði fyrir íslenska ferðaþjónustu og tengiflug okkar til og frá Evrópu. Jafnframt þessari auknu þjónustu við nýjar borgir þá færum við framboð af nokkrum öðrum áfangastöðum þannig að heildarflugframboð Icelandair 2018 er það sama og áður hefur verið kynnt, en við aukum með þessu hagkvæmni leiðakerfisins og styrkjum samkeppnisstöðu félagsins.“

San Francisco, sem var í leiðakerfi Icelandair í tvö sumur fyrir rúmum áratug, er ein þekktasta og vinsælasta ferðamannaborg í heimi og jafnframt ein af fjölmennustu borgum Bandaríkjanna með um 9 milljónir íbúa á San Francisco Bay Area svæðinu.

Flugáætlun Icelandair verður í ár um 10% umfangsmeiri en á síðasta ári og er áætlað er að farþegar verði um 4,5 milljónir. Nú í vor mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins í sumar, 26 af Boeing 757 gerð og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×