Innlent

Fimmtán milljóna lottómiði keyptur í Kringlunni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Rétt tæpar 15 milljónir gengu út í lottói kvöldsins.
Rétt tæpar 15 milljónir gengu út í lottói kvöldsins. Vísir/Valli
Einn var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og hreppti rétt tæpar 15 milljónir króna fyrir vinningsmiðann. Miðinn var seldur í Happahúsinu í Kringlunni í Reykjavík.

Þá fékk einn 2. vinning að andvirði 100 þúsund króna en sá miði var seldur í þjónustumiðstöð Olís, Arnbergi á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×