Innlent

Reginn telur of langt gengið í að vernda íbúana

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Bergstaðastræti þar sem gatan gengur í gegn um Bjargarstíg. Báðar göturnar á að skilgreina sem aðalgötur.
Bergstaðastræti þar sem gatan gengur í gegn um Bjargarstíg. Báðar göturnar á að skilgreina sem aðalgötur. vísir/anton brink
Fasteignafélög og íbúasamtök miðborgarinnar eru meðal þeirra sem gera athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi miðbæjar Reykjavíkur vegna veitingahúsa og gististaða. Ýmis sjónarmið togast á.

Fasteignafélagið Reginn sem á Lokastíg 2 og Þórsgötu 1 þar sem Hótel Óðinsvé er til húsa mótmælir breytingu á svæðinu þar sem felur í sér að ekki megi breyta núverandi atvinnu- og íbúðarhúsnæði þar í gistiþjónustu. Þetta sé hamlandi fyrir vöxt og viðgang núverandi hótels sem eigi þá ekki lengur möguleika á að taka fleiri byggingar við eða í næsta nágrenni undir hótelið.

Benóný Ægisson, formaður Íbúsamtaka Miðborgar Reykjavíkur.vísir/andri marinó
„Þetta ógnar rekstri Hótel Óðinsvéa til framtíðar í samkeppni við ný hótel og bindur hendur rekstraraðila Hótels Óðinsvéa til að efla rekstrareininguna með fjölgun herbergja. Fasteignafélagið Reginn telur að með þessari viðbót sé óþarflega langt gengið í þeirri viðleitni að vernda íbúasamfélagið í jaðri miðborgarkjarnans,“ segir í bréfi Regins þar sem vísað er í viðkomandi svæði virki jafnframt sem bakland fyrir miðborgarkjarnann.

Stjórn Íbúsamtaka Miðborgarinnar vill þrengri skilgreiningu á aðalgötum og meiri takmarkanir á veitingahúsa- og gistihúsarekstri í miðbænum en í öðrum hverfum. Lögð er áhersla á að hornhús við aðalgötur sem til heyra þó hliðagötum fá ekki sömu heimildir til slíks rekstrar og gildir um aðalgötur. Opnunatími nærri íbúabyggð verði ekki lengdur.

„Miðað við venju á íslenskum veitingastöðum eru drykkir framreiddir að lokunartíma og því getur háreysti og ónæði fylgt fram yfir miðnætti," segir í bréfi frá Benóný Ægissyni, formanni íbúasamtakanna.

Í greinargerð frá borginni segir meðal annars að ákvæði um veitingastaði miði almennt að því að tryggja að við staðsetningu vínveitingastaða og ákvörðun um opnunartíma þeirra sé tekið tillit til nálægðar við íbúabyggð.

„Jafnframt er markmiðið með skýrari ákvæðum að tryggja aukinn sveigjanleika þannig að matsölustaðir með vínveitingaleyfi geti þrifist á völdum svæðum innan íbúðarbyggðar, samanber markmið um fjölbreytni og mannlíf innan hverfanna,“ segir í greinargerðinni.

Breytingin var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði í þarsíðustu viku og málinu vísað áfram til meðferðar í borgarráði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×