Handbolti

Lentu á króatískum varnarvegg

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon var í byrjunarliðinu í gær og skoraði þrjú mörk.
Ómar Ingi Magnússon var í byrjunarliðinu í gær og skoraði þrjú mörk. vísir/ernir
Eins og svo oft áður reyndist Króatía of stór hindrun fyrir strákana okkar á stórmóti. Króatar unnu leik liðanna í gær, 22-29, og eru með fullt hús stiga í A-riðli og komnir áfram í milliriðil. Íslendingar eru aftur á móti með tvö stig og mega ekki tapa fyrir Serbum í lokaleik sínum í riðlakeppninni á morgun. Með sigri á Serbíu fer Ísland með tvö stig inn í milliriðil. Serbar hafa tapað báðum leikjum sínum á EM og engin leið að segja í hvaða hugarástandi þeir mæta til leiks á morgun.

Íslenska liðið spilaði frábæran fyrri hálfleik en í þeim seinni sýndu Króatar mátt sinn og megin og keyrðu yfir Íslendinga. Domagoj Duvnjak lék ekki með Króatíu í gær en það breytti engu.

Fyrri hálfleikurinn var einkar vel spilaður af Íslands hálfu. Aron Pálmarsson byrjaði leikinn af miklum krafti og hann kom Íslandi yfir, 7-8, á 17. mínútu. Króatía svaraði með 5-1 kafla en Íslendingar neituðu að gefa sig og minnkuðu muninn í eitt mark fyrir hlé, 13-14.

Skotnýting Íslands í fyrri hálfleik var frábær, 87%, en töpuðu boltarnir voru alltof margir, eða átta. Þá var varnarleikurinn ekki nógu sterkur en Íslendingar áttu í miklum vandræðum með leikstjórnanda Króata, Luka Cindric, sem skoraði sjö mörk og gaf fimm stoðsendingar í leiknum.

Janus Daði Smárason jafnaði metin í 14-14 í upphafi seinni hálfleiks en Króatar skoraði næstu fimm mörk og náðu heljartaki á Íslendingum sem þeir slepptu ekki. Sóknarleikur íslenska liðsins var afar óskilvirkur og vörnin ekki nógu þétt. Til að bæta gráu ofan á svart byrjaði Ivan Stevanovic að verja eins og óður maður í króatíska markinu.

Íslenska liðið sá aldrei til sólar í seinni hálfleik. Töpuðu boltunum fækkaði reyndar en skotnýting versnaði. Íslendingar klesstu einfaldlega á króatískan varnarvegg. Þá var varnarleikur íslenska liðsins aldrei nógu sterkur í leiknum og markvarslan í seinni hálfleik var engin.

Íslendingar hafa sýnt á sér ýmsar hliðar á þessu móti. Góðu kaflarnir hafa verið frábærir en slæmu kaflarnir hafa verið full langir og full margir. Framundan er úrslitaleikur gegn Serbíu og Ísland er með örlögin í eigin höndum. Sigur og Íslendingar fara með tvö stig í milliriðli. Það væri frábær niðurstaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×