Innlent

Lægðin margumrædda ekki lokið sér af

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Svona var um að litast á Þingvöllum í gær. Skyggni lítið sem ekkert.
Svona var um að litast á Þingvöllum í gær. Skyggni lítið sem ekkert. Vísir/SÓJ
Lægðin sem fór yfir landið í gær er nú að koma að norðurströndinni aftur og mun því hvessa fyrir norðan með aukinni úrkomu. Það verður því norðvestan 13 til 23 m/s á vestanverðu landinu og hvassast á Vestfjörðum og Ströndum. Sunnantil á landinu er norðvestanáttin óðum að taka yfir eftir suðvestanáttina enda kominn þar „mun minni vindur og úrkoma“ að sögn Veðurstofunnar.

„Lægðin margumrædda hefur ekki lokið sér af með okkur ennþá því að í dag kemur hún inná Norðurland og færist síðan til austurs,“ segir á vef Veðurstofunnar. Þá dregur úr vindi seinnipartinn, víða norðvestan 8 til 15 m/s seint í kvöld, en hvassara suðaustanlands.

Lægðin færir sig svo síðan aftur norður fyrir land í nótt og því hvessir aftur með ofankomu fyrir norðan á morgun. Eins er útlit að hvessi með ofankomu um allt vestanvert landið um tíma á morgun og því gott að fylgjast vel með spám því „minniháttar breytingar á staðsetningu lægðarinnar geta haft miklar breytingar í för með sér hvar veður verður vont á hverjum tíma,“ eins og Veðurstofan orðar það. Frostið verður yfirleitt á bilinu 0 til 7 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Norðvestan 10-18 m/s með snjókomu eða éljum, hvassast á annesjum vestast, en mun hægari og bjartviðri S- og A-til. Frost víða 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.

Á miðvikudag:

Norðaustlæg átt 3-10 m/s og víða dálítil él. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag, föstudag og laugardag:

Norðlægar áttir og snjókoma eða él á norðanverðu landinu, en úrkomulítið syðra. Frost 0 til 10 stig, mildast við ströndina.

Á sunnudag:

Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með úrkomu og hlýnandi veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×