Tónlist

Unnur Sara frumsýnir nýtt myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Unnu Sara notar grænar blöðrur í nýju tónlistarmyndbandi.
Unnu Sara notar grænar blöðrur í nýju tónlistarmyndbandi.
Tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið sitt Mind illusions.

Myndbandið vann hún í samstarfi við Kötlu Líndal en þær sömdu saman handritið og Katla tók að sér kvikmyndatöku, leikstjórn og eftirvinnslu.

„Mig langaði til að gera myndband sem væri veisla fyrir augun, eitthvað sem er kærkomið í janúarskammdeginu. Ég sagði við Kötlu að ég vildi hafa það fullt af blöðrum, glimmeri og pallíettum og er ánægð með útkomuna,“ segir Unnur.

Lagið fjallar um frelsið sem fylgir því að vera sáttur í eigin skinni og titillinn vísar í þessar hugsanir sem við eigum stundum við okkur sjálf um að við séum ekki nógu góð eða eigum ekki eitthvað skilið.

„Við höfum ekki fundið neitt sambærilegt sjónarspil á netinu svo við erum á því að þetta sé í fyrsta skipti sem svona blöðruatriði hafi verið tekið upp og notað í tónlistarmyndbandi".






Fleiri fréttir

Sjá meira


×