Lífið

Ástin spyr ekki um aldur hjá Gunn­laugs­sonum: Arnar og María eiga von á barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar og María fallegt par.
Arnar og María fallegt par.
„Það kom víst í ljós stuttu eftir að þessi mynd var tekin úr mjög skemmtilegri ferð til US og Kúbu að lítill laumufarþegi hafði smyglað sér með heim. Mikil hamingja að fá tækifæri að verða faðir aftur á gamals aldri,“ segir athafnarmaðurinn Arnar Bergmann Gunnlaugsson á Instagram. Þar greinir hann frá því að María Builien Jónsdóttir sé barnshafandi og parið eigi von á sínu fyrsta barni.

„Ekki skemmir það fyrir að mamman er einstök kona sem hefur þann fágæta eiginleika að lýsa upp hvert herbergi sem hún er í.“

Arnar er 44 ára og María er 28 ára gömul. Það munar því 16 árum á parinu. Vísir greindi frá því á dögunum á bróðir hans Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir eiga einnig von á barni þrátt fyrir að Garðar hafi þurft að fara í aðgerð á pung síðastliðið sumar. Það mun því fjölga töluvert í Gunnlaugsson ættinni á þessu ári.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×