Fótbolti

Giggs tekinn við Wales

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Giggs fékk að prófa sig áfram á hliðarlínunni hjá Manchester United
Giggs fékk að prófa sig áfram á hliðarlínunni hjá Manchester United vísir/getty
Ryan Giggs er orðinn landsliðsþjálfari Wales, en velska knattspyrnusambandið greindi frá því í dag.

Giggs gerði garðinn frægann með liði Manchester United, en hann er leikjahæsti maður í sögu félagsins með 963 leiki í öllum keppnum.

Hann hefur aldrei gengt stjórastarfi áður, en var bráðabirgðastjóri eftir að David Moyes var rekinn frá Manchester United í lok tímabilsins 2013-14. Giggs hafði verið aðstoðarþjálfari Moyes það tímabil.

Giggs er 44 ára og er fæddur í Cardiff í Wales og á að baki 64 landsleiki fyrir þjóð sína. Hann er sigursælasti knattspyrnumaður í sögu fótboltans með 34 titla.

Giggs tekur við af Chris Coleman sem hætti sem landsliðsþjálfari eftir að honum mistókst að koma Wales í lokakeppni HM í Rússlandi.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×