Sport

Gat ekki spilað vegna bananaskorts

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Vandeweghe þarf sína fimm ávexti á dag
Vandeweghe þarf sína fimm ávexti á dag vísir/getty
Hin bandaríska Coco Vandeweghe datt úr leik í fyrstu umferð á Opna ástralska mótinu í tennis í dag. Vandeweghe kennir rifrildi við vallarstarfsmenn um banana um tapið.

Vandeweghe er tíunda á heimslistanum en tapaði fyrir hinni ungversku Timea Babos í þremur settum.

Hún vildi ekki halda áfram keppni eftir fyrsta settið því hún var að bíða eftir banönum.

„Afhverju ætti mér að líða illa yfir því að það er ekki allur viðbúnaður á þessum velli? Ég hef þarfir og þetta er ekki mér að kenna,“ sagði Vandeweghe við dómarann.

Vandeweghe var í undanúrslitum í fyrra en er nú úr leik. Þá féll Venus Williams, sem komst alla leið í úrslitin á síðasta ári, einnig úr leik í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×