Enski boltinn

Sjáðu stoðsendingarnar hans Pogba og öll mörkin hjá Man. United í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Pogba.
Paul Pogba. Vísir/Getty
Manchester United minnkaði forskot nágranna sinna í Manchester City í tólf stig með 3-0 heimasigri á Stoke City á Old Trafford í gærkvöldi.

United nýtti sér því tap Manchester City á móti Liverpool um helgina og náði einnig þriggja stiga forskoti á bæði Liverpool og Chelsea sem eru nú í þriðja og fjórða sæti.

Paul Pogba lagði upp tvö fyrstu mörk Manchester United í leiknum og er nú efstur í stoðsendingum í ensku úrsvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa aðeins náð að spila þrettán leiki.

Pogba er búinn að gefa níu stoðsendingar eða jafnmargar og Kevin De Bruyne hjá Manchester City.  Kevin De Bruyne er hinsvegar búinn að spila tíu leikjum fleira.





Hér fyrir neðan má sjá öll mörkin úr sigri Manchester United liðsins í gær en mörkin skoruðu þeir Antonio Valencia, Anthony Martial og Romelu Lukaku.

Manchester United - Stoke City 3-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×