Innlent

Coca Cola og Ölgerðin stöðva framleiðslu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Framleiðsla hefur verið stöðvað tímabundið en staðan verður tekin aftur síðar í dag.
Framleiðsla hefur verið stöðvað tímabundið en staðan verður tekin aftur síðar í dag.
Coca Cola á Íslandi hefur tekið þá ákvörðun að stöðva framleiðslu á vörum sínum tímabundið á meðan gengið er fullkomlega úr skugga um að vatnið sem notað er sé í lagi. Ekkert bendi þó til annars enda sé verksmiðja fyrirtækisins á Stuðlahálsi utan þess svæðis sem viðvörunin frá Veitum í gærkvöldi náði til.

Neysluvatn á höfuðborgarsvæðinu er drykkjarhæft en komið hefur fram að þeir sem eru viðkvæmir, ungabörn og sjúklingar, ættu að sjóða vatnið til öryggis. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun taka sýni í dag og tilkynnt verður þegar ástand vatnsins stenst reglugerð.

Stefán Magnússon, markaðs- og sölustjóri hjá Coca Cola á Íslandi, segir enga þörf á innköllun á vörum. Engum vörum hafi verið dreift í gær eða föstudag en það var á föstudaginn sem sýni var tekið af starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem sýndi að magn jarðvegsgerla væri yfir mörkum.



Stefán segir Coca Cola hafa verið með varúðarráðstafanir og hluti af þeim hafi verið að stöðva framleiðslu í dag. Það sem framleitt var í gær eða á föstudag hafi ekki farið í dreifingu. Fyrirtækið segir allt benda til þess að vörurnar séu í góðu lagi en fyrirtækið sé með belti og axlabönd í öllu sem það geri.

Þá minnir hann á að í verksmiðjunni sé allt vatn sem komi í framleiðsluna síað auk þess sem útfjólublátt ljós eigi að drepa allar bakteríur.



„Gæðaeftirlit Ölgerðarinnar fylgir ströngum reglum og meðan ekki hafa fengist frekari upplýsingar frá Veitum um gæði vatnsins, verður framleiðsla ekki í gangi,“ segir í tilkynningu frá Ölgerðinni.

Uppfært klukkan 11:45 með yfirlýsingu Ölgerðarinnar.



Tengdar fréttir

Jarðvegsgerlar í kalda vatninu í Reykjavík

Í varúðarskyni mælir Heilbrigðiseftirlitið með því að neysluvatn í vissum hverfum borgarinnar sé soðið ef um neytendur er að ræða sem eru viðkvæmir t.d. með lélegt ónæmiskerfi, ungabörn, aldraðir eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma.

Twitter logar út af menguðu vatni

Fjölgun jarðvegsgerla hefur mælst í kalda vatninu í Reykjavík og er mælst til þess að neysluvatn sé soðið í öllum hverfum borgarinnar nema Grafarvogi, Norðlingaholti, Úlfarsárdal, Kjalarnesi auk Mosfellsbæjar, sem fá vatn frá öðrum svæðum í Heiðmörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×