Neytendur

Ragnar á Hótel Adam hlýtur uppreist æru

Jakob Bjarnar skrifar
Jarðvegsgerlaupphlaupið á Facebook í gærkvöldi var snarpt og skemmtilegt og lögðu margir orð í belg.
Jarðvegsgerlaupphlaupið á Facebook í gærkvöldi var snarpt og skemmtilegt og lögðu margir orð í belg.
Eins og Vísir hefur greint skilmerkilega frá er óhætt að drekka allt vatn á höfuðborgarsvæðinu. En, talsvert uppnám varð á samfélagsmiðlum í gærkvöldi eftir að tilkynning frá Veitum barst þess efnis að jarðvegsgerlar stæðust ekki viðmið í reglugerð. Það flaug fyrir að um væri að ræða E.coli eða saurgerla en jarðvegsgerlar eru heiti yfir allar bakteríur fyrir utan einmitt það.

Fáir njóta eldanna

Eftir að rykið tók að setjast hafa menn bent á að einn sé sá maður sem geti í það minnsta borið höfuðið hátt og sé heitir Ragnar Guðmundsson hótelstjóri á Hótel Adam við Skólavörðustíg. Helgi Seljan sjónvarpsmaður er í það minnsta þeirrar skoðunar.







Helgi vitnar í Davíð Stefánsson skáld: „Fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá“ og segir að hótelstjórinn á Skólavörðuholtinu hafi ekki þótt „lítill svíðingur þegar hann varaði við bráðmenguðu Gvendarbrunnarvatni fyrir tæpum tveimur árum. Ég get ekki betur séð en að hér sé í uppsiglingu nýtt Gæðakokkamál. Þessar flöskur eru að lágmarki 4000 króna virði í dag.“

Þar er rifjað upp mál sem fór hátt fyrir ári en þá greindi Vísir frá því að á Hótel Adam væri hafður sá háttur á að vara við kranavatninu en svo heppilega vildi til að á hótelinu mátti kaupa vatnsflöskur á 400 krónur. En, ekki er þó víst að Ragnar sleppi alveg fyrir horn, eins og Helgi vill ætla, því seinna kom á daginn að vatnið á þeim flöskum var einmitt úr sömu krönum og varað hafði verið við.

Meint yfirvarp

Jarðvegsgerlaupphlaupið á Facebook í gærkvöldi var snarpt. Og má ef til vill setja það í samhengi við kosningaskjálfta vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var nánast úthrópaður af pólitískum andstæðingum sínum í borginni vegna málsins.

Sveinbjörgu Birnu varð um og ó þegar fregnir bárust seinni partinn í gær af jarðvegsgerlum í neysluvatni.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi var með böggum hildar vegna málsins: „Skv. Google þá er saurgerlamengun notað um ecoli sýkt neysluvatn í Súðavík, Svalbarðseyri, Borgarfirði og Laugavatni. Rúv hefur leitað til málfarsráðunautar til að nota annað þegar sama gerist í Höfuðborginni. Ætli næsta útspil verðu ekki að borgarlínan bjargi þessu.“

Vatnið veldur skæðum kommúnisma

Reyndar ýtti RÚV undir þennan misskilning með frétt sem nú hefur verðið leiðrétt um að þarna væri um E.coli að ræða og var það nokkuð til umræðu á Facebook-síðu Eyþórs Arnalds frambjóðanda í leiðtogakjöri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna. Þar bendir einn á, fremur háðskur í bragði, að um stórhættulegt vatn sé að ræða: „Mér skilst að vatnið geti valdið skæðum kommúnisma eins og það er núna, Skulið nú passa ykkur að súpa ekki á því um of.“ Mbl.is, sem er að kvartfjórðungi í eigu Eyþórs, gerði sér mat úr ummælum frambjóðandans.

Baggalúturinn Bragi Valdimar Skúlason leggur sig í líma við að sjá spaugilegar hliðar á hverju máli. Hann vitnar í frétt Vísis um að dagurinn í gær hafi verið versti dagur ársins. „Hann var samt alveg fínn þangað til einhver kúkaði í vatnið mitt.

Jafnaðarmenn vilja fegra orðalagið

En, fleiri voru á því að rétt væri að setja málið í pólitískt samhengi. Einn þeirra er sá frambjóðandi sem vakið hefur hvað mesta athygli að undanförnu, nefnilega Viðar Guðjohnsen, sem telur málið alvarlegt:

„Hvernig má það vera að okkar tæra og góða vatn sé smitað af saurgerlum? Borgarbúar eiga rétt á að þetta mál verði upplýst,“ segir Viðar harður í horn að taka og lætur engan bilbug á sér finna þó honum sé bent á að saurgerlar séu ekki það sama og jarðvegsgerlar. „En þú ert kannski ekki að hafa áhyggjur af smávægilegum staðreyndum eins og sannleikanum,“ spyr Inga Auðbjörg Straumland.

„Átt þú við að ég eigi að fegra orðalagið? Tek ekki þátt í slíku. Það eru jafnaðarmenn sem gera slíkt. E. Coli eru saurgerlar. Hvort sem þeir finnast í jarðvegi eða ekki.“

Gísli Marteinn Baldursson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og nú sjónvarpsmaður á Ríkissjónvarpinu, telur sig hins vegar greina nokkurn tvískinnung í málinu öllu:


Tengdar fréttir

Twitter logar út af menguðu vatni

Fjölgun jarðvegsgerla hefur mælst í kalda vatninu í Reykjavík og er mælst til þess að neysluvatn sé soðið í öllum hverfum borgarinnar nema Grafarvogi, Norðlingaholti, Úlfarsárdal, Kjalarnesi auk Mosfellsbæjar, sem fá vatn frá öðrum svæðum í Heiðmörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×