Erlent

Verja Trump því þeir heyrðu hann segja „skítahús“

Kjartan Kjartansson skrifar
Repúblikönum og demókrötum hefur ekki tekist að koma sér saman um örlög ungra innflytjenda sem hafa notið verndar svonefndrar DACA-áætlunar.
Repúblikönum og demókrötum hefur ekki tekist að koma sér saman um örlög ungra innflytjenda sem hafa notið verndar svonefndrar DACA-áætlunar. Vísir/AFP
Tveir þingmenn repúblikana sem hafa neitað því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi kallað nokkur Afríkulönd „skítaholur“ eru sagðir þræta fyrir það vegna þess að þeim hafi heyrst forsetinn segja „skítahús“. Alríkisstjórn Bandaríkjanna gæti stöðvast eftir að viðræður um innflytjendamál sigldu í strand vegna ummæla Trump.

Fjöldi bandarískra stjórnmálamanna og erlendra leiðtoga eru á meðal þeirra sem hafa fordæmt Trump fyrir að hafa kallað Haítí, El Salvador, Hondúras og nokkur Afríkuríki „skítaholur“ á fundi með þingmönnum beggja flokka í Hvíta húsinu á fimmtudag.

Tilefni fundarins var samkomulag sem repúblikanar og demókratar hafa reynt að ná um innflytjendamál, þar á meðal framtíð fólks sem var flutt ólöglega til Bandaríkjanan sem börn og hefur notið verndar frá brottflutningi með svonefndri DACA-áætlun. Trump batt enda á hana í haust.

Óttuðust að Trump yrði „gabbaður“

Washington Post segir að upphaflega hafi Trump litist vel á málamiðlun sem Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður repúblikana, og Richard Durbin, öldungadeildarþingmaður demókrata, höfðu unnið að. Boðaði hann þá til fundar í Hvíta húsinu á fimmtudag.

Harðlínumenn í innflytjendamálunum í Hvíta húsinu hafi hins vegar ekki litist á blikuna, ekki síst Stephen Miller, ráðgjafa forsetans, sem er sagður hafa óttast að Graham og Durbin myndu „gabba“ forsetann til að skrifa undir lög sem myndu skaða hann í augum stuðningsmanna hans.

Trump var fyrst opinn fyrir þverpólitísku samkomulagi um innflytjendamál. Harðlínumenn í Hvíta húsinu hafi hins vegar sannfært hann um að samkomulagið væri andstætt pólitískum hagsmunum hans.Vísir/AFP
Hann og fleiri starfsmenn Hvíta hússins hafi þá boðað þingmenn repúblikana sem aðhyllast harðari innflytjendastefnu á fundinn. Rétt fyrir hann hafi John Kelly, starfsmannastjóri Hvíta hússins, gert Trump grein fyrir því að samkomulagið sem Graham og Durbin ynnu að gengi gegn hagsmunum hans.

Þegar að fundinum kom hafi því verið komið annað hljóð í strokkinn hjá Trump. Forsetinn hafi verið ergilegur og fundið samkomulagi tvímenninganna allt til foráttu, meðal annars með þeim munnsöfnuði sem nú er frægur orðinn.

Vefengdu ekki ummælin fyrr en eftir að þau vöktu reiði

Eftir að Washington Post sagði fyrst frá ummælum Trump um „skítaholur“ var fátt um viðbrögð. Trump er ekki sagður hafa tekið því nærri sér og jafnvel hringt í vini sína til að stæra sig af ummælunum og spyrja þá hvernig þeir héldu að stuðningsmenn sínir tækju þeim. Hvíta húsið þrætti ekki fyrir ummælin í yfirlýsingu vegna ummælanna.

Það var ekki fyrr en eftir að ummælin vöktu verulega hörð viðbrögð sem Trump og bandamenn hans tóku til við að vefengja sannleiksgildi fréttanna. Daginn eftir sagðist Trump hafa notað „hart“ orðalag en ekki það sem haft var eftir honum í fjölmiðlum.

Tveir þingmenn repúblikana sem voru á fundinum, David Perdue og Tom Cotton, sögðust upphaflega ekki „minnast þess sérstaklega“ að Trump hefði látið þessi tilteknu ummæli falla. Á sunnudaginn gengu þeir hins vegar lengra og fullyrtu að forsetinn hefði alls ekki talað um „skítaholur“.

Wahington Post segir nú að ástæðan fyrir því að þingmennirnir neiti að Trump hafi sagt þetta sé sú að þeir hafi talið hann hafa sagt „skítahús“. Á þeim grundvelli hafi þeir getað neitað fréttum um orð forsetans. Báðir neituðu þeir að tjá sig um málið við blaðið í gær.

David Perdue (t.v.) og Tom Cotton (t.h.) hafa neitað því að Trump hafi talað um skítaholur. Washington Post segir að það sé vegna þess að þeim hafi heyrst Trump tala um skítahús.
Vantraust eftir skítaholufundinn

Trump hélt áfram að þræta fyrir að hafa látið ummælin falla á Twitter í dag. Þar sakaði hann Durbin, sem hefur fullyrt að Trump hafi talað um „skítaholur“, um að hafa farið með „algerar rangfærslur“ um það sem var sagt á fundinum.

„Það er ekki hægt að gera samninga þegar það er ekkert traust!“ tísti Trump.

Viðræður flokkana um innflytjendamál hafa verið tengdar við samningaumleitanir um að hækka lögbundið skuldaþak ríkissjóðs en frestur til þess rennur út á föstudag. Náist það ekki gæti alríkisstjórnin þurft að stöðva starfsemi sína líkt og gerðist í tvær vikur í október árið 2013.

Aukinn meirihluta þarf í öldungadeildinni til þess að samþykkja að hækka skuldaþakið. Repúblikanar þurfa því stuðnings að minnsta kosti níu demókrata. Demókratar hafna því hins vegar alfarið að vinna með repúblikönum nema að tryggt verði að skjölstæðingar DACA-áætlunarinnar njóti áfram verndar.

Algert vantraust er sagt ríkja á milli fulltrúa flokkanna eftir fundinn í Hvíta húsinu á fimmtudag. Þá er heldur ekki gefið að leiðtogum repúblikana takist að smala saman nægilegum fjölda atkvæða eigin þingmanna til þess að samþykkja hærra skuldaþak.


Tengdar fréttir

Ummælum Trump hefur verið mótmælt víða

Ummælum Bandaríkjaforseta um innflytjendur frá skítalöndum hefur verið mótmælt víða og hafa sendiráð Bandaríkjanna í nokkrum Afríkuríkum verið krafin formlegs rökstuðnings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×