Innlent

Lokanir vegna veðurs: Tvær rútur þvera veginn á Mosfellsheiði

Þórdís Valsdóttir skrifar
Mosfellsheiði er lokuð eins og stendur og tvær rútur með um fimmtíu farþegum innanborðs þvera veginn.
Mosfellsheiði er lokuð eins og stendur og tvær rútur með um fimmtíu farþegum innanborðs þvera veginn. Vísir/Egill
Mosfellsheiði hefur verið lokað vegna veðurs og eru björgunarsveitir nú að störfum þar. Þar sitja tvær rútur fastar þvert á veginn og hindra umferð yfir heiðina. Þá er einnig búið að loka Lyngdalsheiði, Hellisheiði og Þrengslum vegna veðurs.

Rúmlega fimmtíu farþegar eru um borð í rútunum og vinna björgunarsveitarmenn meðal annars að því að flytja farþega úr rútunum niður af heiðinni og kanna ástand annarra smærri bíla sem eru í vanda á heiðinni.

Um sjötíu björgunarsveitarmenn eru að sinna verkefnum tengdum veðrinu sem gengur nú yfir svæðið. 

Á fjórða tímanum í dag voru boðaðar út björgunarsveitir frá Laugarvatni, Grímsnesi, Eyrabakka, Selfossi og Reykjavík. 

Nú síðdegis var Hellisheiði og Þrengslum lokað. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verða 15 til 20 metrar á sekúndu á Hellisheiðinni og getur orðið mjög blint. Lyngdalsheiði er einnig lokuð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×