Leik lokið: Króatía - Svíþjóð 31-35 | Svíar sendu strákana okkar heim

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Svíar mega ekki fagna í kvöld.
Svíar mega ekki fagna í kvöld. Vísir/EPA
Allt fór á versta veg fyrir strákana okkar í íslenska landsliðinu sem er úr leik á Evrópumótinu í handbolta sem nú fer fram í Króatíu. Það varð ljóst eftir sigur Svía á gestgjöfunum í kvöld, 35-31.

Ísland mátti tapa með mest þriggja marka mun fyrir Serbíu fyrr í kvöld og það var það sem gerðist. Serbar unnu sigur, 29-26, eftir að Íslendingar voru með mest fjögurra marka forystu í síðari hálfleik.

En tapið þýddi að Íslendingar þurftu að stóla á króatískan sigur gegn Svíum í kvöld. Væntingar til þess voru fyllilegar raunhæfar enda Króatar með eitt besta lið heims og á heimavelli þar að auki.

En Svíar, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, spiluðu stórkostlega í kvöld og sáu heimamenn aldrei til sólar. Svíar byrjuðu leikinn af fítonskrafti og náðu snemma myndarlegri forystu sem þeir létu aldrei af hendi.

Staðan að loknum fyrri hálfleik var 17-12, þeim gulklæddu í vil og héldu þeir heimamönnum í skefjum í síðari hálfleik. Króatar komust í raun aldrei nálægt því að ógna sigri Svía.

Svíar vinna því riðilinn og fara áfram með fjögur stig. Króatar fara áfram með tvö og Serbar komast áfram, en án stiga. Ísland situr eftir með sárt ennið. Staðreyndin er sú að frábær sigur á Svíum í fyrsta leik keppninnar skilaði okkar mönnum engu þegar uppi var staðið.

Ellefu leikmenn Svía komust á blað í leiknum í kvöld en markahæstir voru Simon Jeppson, Albin Lagergren og Jesper Nielsen með fimm mörk hver. Ivan Cupic var markahæstur Króata með sjö mörk.

Markvarsla Króata var hörmuleg í leiknum en samanlagt vörðu markverðir heimamanna sex skot. Hlutfallsmarkvarsla þeirra var fimmtán prósent. Hún var ögn skárri hjá sænsku markvörðunum - átta varin skot og 21 prósent hlutfallsmarkvarsla.


Tengdar fréttir

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira