Handbolti

Kristján: Hefði gjarnan viljað taka íslenska landsliðið með okkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristján Andrésson.
Kristján Andrésson. Vísir/Getty
Kristján Andrésson, þjálfari sænska landsliðsins, stýrði Svíum til sigurs á Króatíu í lokaleik riðlakeppninnar og Svíar sáu með því til þess að íslenska landsliðið þurfti að pakka saman og fara heim.

Kristján var að sjálfsögðu ekkert að hugsa um örlög íslenska landsliðsins þetta kvöld enda þjálfari sænska liðsins. Það var heldur ekkert að hann ætlaði að „hefna“ tapsins á móti Íslandi í fyrsta leik mótsins með því að henda íslenska liðinu úr keppni.

„Síðan fékk ég að vita rétt fyrir leik að Íslendingar hefðu tapað sínum leik við Serba með þremur mörkum svo þá var ljóst að við færum áfram með 4 stig með sigri en 0 stig með tapi. Þegar við höfðum svo unnið og ég áttaði mig á því að Íslendingar færu ekki með okkur hingað til Zagreb þá var það náttúrulega ekkert skemmtilegt,“ sagði Kristján Andrésson í samtali við Sindra Sverrisson í Morgunblaðinu.

„Ég hefði gjarnan viljað taka íslenska landsliðið með okkur, en að sama skapi vorum vuið bara að gera okkar besta fyrir sænska landsliðið og þetta urðu afleiðingarnar af því,“ sagði Kristján.

Íslenska liðið komst mest tíu mörkum yfir á móti Svíum í fyrsta leiknum og vann flottan sigur. „Við höfum auðvitað bætt okkar leik á mótinu en að sama skapi þá mættum við frábæru íslensku liði í fyrsta leiknum. Þeir voru ótrúlega klókir í sóknarleiknum og settu okkur í stöður sem við vildum ekki vera í,“ sagði Kristján í fyrrnefndu viðtali.

„Við lærðum mjög mikið af þessum leik,“ sagði Kristján en markatala Svía frá því að þeir voru tíu mörkum undir á móti Íslandi er 74-55 eða plús +19.

Kristján finnst Geir Sveinsson hafa gert góða hluti með íslenska landsliðið. „Mér finnst Ísland vera lið með mikla möguleika,“ segir Kristján en það má finna allt viðtalið við hann í Morgunblaðinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×