Gylfi og félagar gerðu jafntefli Dagur Lárusson skrifar 20. janúar 2018 17:00 Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty Oumar Niasse tryggði Everton stig gegn WBA í leik liðanna í dag en eftir leikinn situr Everton í 9.sæti deildarinnar með 28 stig. Gestirnir í WBA byrjuðu leikinn betur en það var Jay Rodriguez sem kom þeim yfir strax á 7.mínútu. Gylfi og félagar virtust ekki eiga svör gegn vörn WBA og því var staðan 0-1 í hálfleik. Everton tók við sér í seinni hálfleiknum og sótti án afláts. Það skilaði sér á 70. mínútu þegar varamaðurinn Oumar Niasse skoraði eftir stoðsendingu frá Theo Walcott, nýjasta leikmanni liðsins. 1-1 jafntefli reyndust lokatölur leiksins og er Everton nú með 28 stig. Enski boltinn