Þrenna Aguero sökkti Newcastle

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sergio Aguero hlóð í þrennu
Sergio Aguero hlóð í þrennu Vísir/Getty
Topplið Manchester City er aftur komið á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni eftir öruggan tveggja marka sigur á Newcastle á Etihad leikvangnum í kvöld.

Leikurinn var markalaus þar til á 34.mínútu þegar Sergio Aguero fann leiðina fram hjá þéttum varnarmúr gestanna. Aguero var svo aftur á ferðinni eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hann skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Raheem Sterling.

Gestirnir voru ekki tilbúnir að gefast upp alveg strax því Jacob Murphy minnkaði muninn á 67.mínútu.

Aguero var hins vegar ekki hættur og gerði endanlega út um leikinn þegar hann fullkomnaði þrennu sína á 83.mínútu eftir algjörlega stórkostlegan undirbúning Leroy Sane.

City er því enn með tólf stiga forystu á toppi deildarinnar en Newcastle er tveimur stigum frá fallsæti eftir 24 leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira