Íslenski boltinn

Valur samþykkir tilboð Sarpsborg í Orra

Orri Sigurður hefur verið einn besti varnarmaður Pepsi-deildarinnar undanfarin ár.
Orri Sigurður hefur verið einn besti varnarmaður Pepsi-deildarinnar undanfarin ár. vísir/andri marinó
Valsmenn senda frá sér tilkynningu á heimasíðu sinni í kvöld þar sem fram kemur að félagið hafi samþykkt tilboð frá norska félaginu Sarpsborg í miðvörðinn Orra Sigurð Ómarsson.

Orri sem varð Íslandsmeistari með Valsliðinu á síðasta ári var lengi vel í viðræðum við Horsens en upp úr slitnaði úr þeim viðræðum á dögunum.

Ferðast hans til Noregs eftir helgi þar sem hann gengst undir læknisskoðun og semur við félagið um kjör og kaup.

Sarpsborg er íslenskum knattspyrnuaðdáendum góðkunnugt en um tíma léku fjórir íslenskir leikmenn með liðinu, þeir Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Guðmundur Þórarinsson, Haraldur Björnsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×