Körfubolti

Átján stig Martins gátu ekki komið í veg fyrir tap

Martin hitti vel í kvöld í stórtapi.
Martin hitti vel í kvöld í stórtapi. vísir/getty
Martin Hermannsson var stigahæstur í liði Chalons-Reims í 32 stiga tapi 95-63 á heimavelli gegn Bourg En Bresse á heimavelli í frönsku deildinni í kvöld.

Úrslitin voru í raun ráðin í hálfleik þegar gestirnir leiddu 47-26 en þeir bættu ellefu stigum við forskot sitt í þriðja leikhluta.

Martin fór fyrir sínu liði með átján stig en hann hitti úr 4/8 þriggja stiga skotum sínum og öllum vítaskotunum en hann tók tvö fráköst.

Var þetta annað tap Chalons í röð sem situr í 15. sæti frönsku deildarinnar þegar keppni er hálfnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×