Innlent

Seldu minna af flugeldum í ár

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Salan var nokkuð mismunandi eftir landshlutum og þá minni sums staðar í dreifbýlinu.
Salan var nokkuð mismunandi eftir landshlutum og þá minni sums staðar í dreifbýlinu. Vísir/ernir
Sumar björgunarsveitir seldu töluvert minna af flugeldum í ár en í fyrra en heilt yfir gekk salan þó ágætlega. Formaður Landsbjargar telur samkeppnina hafa tekið hlut af flugeldasölunni til sín.

Flugeldasalan í ár gekk ágætlega að sögn Smára Sigurðssonar, formanns Landsbjargar, og voru flestar sveitir að selja svipað magn og í fyrra. Salan dróst hins vegar saman hjá sumum sveitum og telur Smári að heildarflugeldasalan í ár gæti því verið minni en í fyrra. Salan var nokkuð mismunandi eftir landshlutum og þá minni sums staðar í dreifbýlinu.

„Þetta er svona meira úti í dreifbýlinu sem kemur einn og einn staður sem hefur selt verulega minna. Það er reyndar á ansi mörgum stöðum, hjá mörgum björgunarsveitum sem eru í litlu samfélagi, þar er sáralítil sala.“

Smári segir flugeldasöluna ganga upp og niður milli ára en telur að ýmis ytri skilyrði hefðu átt að veita henni meðbyr á þessu ári. „Nú var veðrið gott. Við fengum að vísu þessa umræðu um mengun sem truflaði svolítið og svo höfum við mjög virka samkeppni víða í flugeldum. Það stækkar ekkert flugeldamarkaðinn að hafa fleiri til að selja.“

Mikið var sprengt á Skólavörðuholtinu í nótt.Vísir/Egill
Gerðist lítið fyrir hádegi

Yfir helmingur sölunnar fer yfirleitt fram á gamlársdag en Smári segir söluna hafa farið heldur hægt af stað í gær. Mögulega hafi það haft áhrif að gamlársdagur lenti á sunnudegi. 

„Eins og í gær var svolítið sérstakt, allavega í mínu hverfi, minni björgunarsveit, þá gerðist ekki neitt fyrr en um hádegi. Þannig að þetta var ansi snarpur sprettur frá hádegi og fram að lokun, sem oftar en ekki dreifist á allan þennan dag. En það var margt óvenjulegt við söluna hjá okkur í ár, bæði seinni partinn á laugardaginn og á sunnudaginn,“ segir Smári Sigurðsson, formaður Landsbjargar.


Tengdar fréttir

Sævar Helgi leggur til að banna almenna notkun flugelda

Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðikennari og vísindamiðlari, segir að umhverfissjónarmið verði að vega þyngra en það skemmtanagildi sem felst í því að sprengja flugelda. Hann er sannfærður um að fólk geti skemmt sér án þess að því fylgi læti, hávaði og mengun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×