Enski boltinn

Gengur best hjá Íslendingum gegn Liverpool

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Burnley fagna marki Jóa Berg
Leikmenn Burnley fagna marki Jóa Berg vísir/getty
Íslenskir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni skora mest gegn Liverpool, en Jóhann Berg Guðmundsson varð í dag sjöundi íslenski leikmaðurinn til þess að skora gegn hinum rauðklæddu.

Markið, sem kom undir lok leiksins, var það fyrsta sem Jóhann Berg skoraði á þessu tímabili í úrvalsdeildinni og hans fyrsta mark gegn Liverpool.

Ekkert annað lið í úrvalsdeildinni hefur fengið á sig mark frá jafn mörgum íslenskum leikmönnum, en þeir sem hafa skorað gegn Liverpool eru:

Brynjar Björn Gunnarsson

Eiður Smári Guðjohnsen

Grétar Rafn Steinsson

Gylfi Þór Sigurðsson

Hermann Hreiðarsson

Heiðar Helguson

Jóhann Berg Guðmundsson



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×