Erlent

Unglingur talinn hafa skotið fjölskyldu sína til bana

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Í tilkynningu frá saksóknara segir að unglingurinn sé talinn hafa myrt fjölskyldu sína með sjálfhlaðandi riffli. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Í tilkynningu frá saksóknara segir að unglingurinn sé talinn hafa myrt fjölskyldu sína með sjálfhlaðandi riffli. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Unglingur í New Jersey-ríki í Bandaríkjunum var handtekinn seint á gamlársdag eftir að foreldrar hans og systir, auk kunningjakonu fjölskyldunnar, fundust látin á heimili sínu. New York Times greinir frá.

Í tilkynningu frá saksóknara segir að unglingurinn, sextán ára piltur, sé talinn hafa myrt fjölskyldu sína með hálfsjálfvirkum riffli. Faðir drengins, hinn 44 ára Steven Kologi, móðir hans Linda og Brittany, átján ára systir hans létust í árásinni. Sjötug kunningjakona þeirra, Mary Schultz, fannst einnig látin á heimili fjölskyldunnar en lögreglu barst tilkynning um árásina skömmu fyrir miðnætti á gamlársdag.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að afi og bróðir drengsins hafi komist undan ómeiddir. Drengurinn hefur enn ekki verið nafngreindur og þá liggur enn ekkert fyrir um ástæður að baki morðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×