Viðskipti innlent

Norðlenska flytur innan tveggja ára

Sveinn Arnarsson skrifar
Fyrirtækið Norðlenska og fyrirrennarar þess hafa stundað slátrun og vinnslu við Grímseyjargötu á Akureyri allar götur frá 1928.
Fyrirtækið Norðlenska og fyrirrennarar þess hafa stundað slátrun og vinnslu við Grímseyjargötu á Akureyri allar götur frá 1928. vísir/pjetur
Norðlenska á Akureyri hefur sagt upp leigusamningi sínum og hyggst flytja höfuðstöðvar sínar úr núverandi húsnæði á Akureyri en sláturhús og kjötvinnslustöð hefur verið starfrækt á sama stað við Grímseyjargötu allar götur frá 1928.

Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska
Auk höfuðstöðvanna á Akureyri er fyrirtækið einnig með sláturhús á Höfn og á Húsavík. Viðræður hafa verið í gangi milli fyrirtækisins og Hörgársveitar annars vegar og Akureyrar hins vegar, um nýja lóð fyrir fyrirtækið.

Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska, segir líklegast að fyrirtækið byggi sér nýtt húsnæði undir starfsemi sína. „Við höfum sagt upp leigusamningnum og munum að óbreyttu flytja út að tveimur árum liðnum, eða í upphafi árs 2019,“ segir hann. „Þú ferð ekki út á fasteignasölu og nærð þar í 5.000 fermetra iðnaðarhúsnæði. Við þurfum að lágmarki 15.000 fermetra lóð fyrir starfsemi okkar og höfum verið í viðræðum við tvö sveitarfélög og fengið vilyrði hjá þeim báðum um lóð fyrir starfsemina.“

Núverandi húsnæði Norðlenska er í eigu fyrirtækisins Miðpunkts ehf. Miðpunktur er í eigu sömu aðila og eiga og reka Kjarnafæði, einn af keppinautum Norðlenska á markaði. Að sögn Ágústs Torfa rennur samningurinn út nú um áramótin en ágreiningur var um hvenær Norðlenska þyrfti að fara úr húsnæðinu.

„Í lok árs 2007 var gerður leigusamningur til tíu ára og að þeim tíma liðnum var hann uppsegjanlegur með tveggja ára fyrirvara. Það voru uppi deildar meiningar milli aðila um hvenær nákvæmlega samningurinn rennur út. Niðurstaðan er hins vegar sú að við förum út eftir tvö ár.“

Gunnlaugur Eiðsson, forstjóri Kjarnafæðis sem á fasteignir Norðlenska, segir nokkrar hugmyndir nú þegar uppi um framtíðarnotkun húsanna. „Það er hins vegar mín skoðun að þessi tvö fyrirtæki sem starfa á nákvæmlega sama markaði, Kjarnafæði og Norðlenska, ættu að renna saman í eina sæng,“ segir Gunnlaugur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×